Hleð spilara!
Akstur
Allir vilja komast heilir heim. Til að svo verði er mikilvægt að fara eftir lögum og reglum, sýna tillitsemi og almenna skynsemi í umferðinni.

Lang stærsta orsök umferðarslysa má rekja til ökumannsins sjálfs en ekki bílsins eða vegarins. Góð aksturshegðun er því það sem skilar okkur hvað mestu í bættri og öruggari umferð. Hjálpar okkur að ná núllsýninni sem byggir á því að engin banaslys eða alvarleg slys verði. Öruggir bílar, vegir og vegumhverfi hefur líka mikið að segja þegar slys verða.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
