Hleð spilara!

Náttúruhamfarir

Náttúruhamfarir eru nokkuð algengar á Íslandi. Eldgos, jarðskjálftar, óveður og flóð eru nokkuð sem allir Íslendingar þekkja. Einna helst koma eldingar landsmönnum á óvart.


Táknmynd fyrir Eldgos

Eldgos

Þrátt fyrir að gosi í Grímsvötnum sé löngu lokið er enn öskufok á ákveðnum svæðum í roki. Mikilvægt er að allir kynni sér rétt viðbrögð í öskufoki til að fyrirbyggja óþægindi, slys og tjón. Helstu upplýsingar er að finna hér á heimasíðunni. Meira

Táknmynd fyrir Eldingar

Eldingar

Eldingar eru ekki tíðar hér á landi miðað við í mörg nágrannalandanna. Eldingar verða aðallega hérlendis samhliða þrumuveðri eða eldgosum. Full ástæða er til að hafa varann á og fylgja varúðarleiðbeiningum þegar eldingar eru í lofti. Meira

Táknmynd fyrir Flóð

Flóð

Á hverju ári verða flóð hér á landi. Mismunandi er hvort um ræðir snjó-, sjávar- eða aurflóð. Mikilvægt er að hver og einn sé meðvitaður um um hætturnar á flóðum og leiti upplýsinga um möguleika á þeim eftir veðurfari sem verið hefur eða er spáð. Meira

Táknmynd fyrir Jarðskjálftar

Jarðskjálftar

Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan brotnar eða hrekkur til. Við höggið sem myndast breiðast jarðskjálftabylgjur út frá brotafletinum.Meira

Táknmynd fyrir Óveður

Óveður

Mikilvægt er að allir taki mark á viðvörunum Veðurstofunnar og hagi sér í takt við þær. Stormur er skilgreindur þegar vindur er á bilinu 20-30 m/sek og í skilgreiningu Veðurstofunnar segir að þá þurfi fólk að gá að sér. Meira