Hleð spilara!
Vatnsvarnir
Á hverju ári verða vatnstjón hér á landi fyrir hundruð milljóna króna. Þótt margir séu vel tryggðir fylgir mikið rask slíkum tjónum og oft á tíðum getur verið ógjörningur að bæta ómetanlega hluti sem skemmast.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja vatnstjón en á forvarnaheimilinu eru vatnsvarnir heimilisins settar fram á myndrænan og skemmtilegan hátt. Vert er að hafa í huga að vatnstjón vegna slits eða skorts á viðhaldi eru ekki bætt og stór hluti vatnstjóna verða vegna þess að rör ryðga í sundur.
Vatnsskynjarar hafa bjargað mörgum frá stórum vatnstjónum. Þá er gott að hafa á gólfi í þvottahúsi, eldhúsi og baðherbergi. Skynjarinn gengur fyrir rafhlöðu og gefur frá sér hávært hljóð þegar raki kemst undir hann. Skynjarinn getur líka verið tengdur öryggiskerfi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
