Hleð spilara!

Jafnréttisstefna

Stefna VÍS í jafnréttismálum er að hver einstaklingur sé metin að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu. Þannig telur VÍS að félagið geti nýtt sér hæfileika og færni allra starfsmanna sinna á sem bestan hátt.


Jafnréttisáætlun

Stefna VÍS í jafnréttismálum er að hver einstaklingur sé metin að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu. Með jafnréttisáætlun vill félagið sjá til þess að jafnræðis sé gætt milli starfsmanna þess og að kynbundinni mismunun verði útrýmt, sé hún til staðar. Þannig telur VÍS að félagið geti nýtt sér hæfileika og færni allra starfsmanna sinna á sem bestan hátt.

Almenn markmið

Kjaramál

Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir sambærilega frammistöðu í sömu störfum. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár.

Ráðningar og störf

Unnið verði að því að bæði kynin sæki um lausar stöður. Við nýráðningar og tilfærslur í starfi verði unnið að jafnari kynjaskiptingu innan deilda félagsins. Einnig verði leitast við að halda sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í hinum ýmsu störfum innan deilda.

Starfsþróun og endurmenntun

Við úthlutun verkefna, tilfærslu í störfum og tækifæra til að axla ábyrgð verði þess gætt að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis. Tryggt verði að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings öðrum störfum.

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

Starfsfólki verði gert kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu. Sérstaklega verði tekið tillit til kvenna á meðgöngutíma og við umönnun ungbarna. Leitast verði við að starfsmenn félagsins hafi möguleika á sveigjanlegu orlofi eftir því sem við verður komið. Sérstaklega verði komið á móts við starfsmenn sem þurfa að taka á sig aukna fjölskylduábyrgð vegna umönnunar langveikra barna eða annarra nákominna fjölskyldumeðlima.

Starfsandi og líðan starfsmanna

Lögð verði áhersla á góða líðan starfsmanna og góðan starfsanda hjá VÍS. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og að þeir sæti ekki kynferðislegri áreitni, einelti né öðru ofbeldi.

Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

Sértæk markmið

  • Starfsmenn verði metnir til launa sem einstaklingar. Launamunur á því eingöngu að endurspegla mismunandi störf, álag og frammistöðu.
  • Í auglýsingum um laus störf komi fram að VÍS vinni eftir jafnréttisáætlun og að jafnt konur sem karlar verði hvattir til að sækja um.
  • Markvisst verði unnið að því að jafna fjölda kvenna og karla í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum.
  • Stjórnendur hvetji starfsmenn til að eiga frumkvæði að endurmenntun.
  • Starfsmenn fái kennslu í markmiðasetningu til að auka árangur í starfi og gera starfsþróun markvissari.
  • Stjórnendur hafi heildarhagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi við ákvörðun um starfsþróun
  • Starfsfólki verði boðin fræðsla um það hvernig stuðla megi að jafnvægi milli starfs og einkalífs.
  • Karlmenn verði hvattir til að axla eðlilega fjölskylduábyrgð.
  • VÍS hvetur til þess að gert verði ráð fyrir þátttöku maka og barna í félagslífi starfsmanna þegar það á við.
  • Allir starfsmenn verði meðvitaðir um að einelti og kynferðisleg áreitni verði ekki liðin. Starfsfólki verði gerð skýr grein fyrir boðleiðum og framvindu slíkra mála.