Hleð spilara!

Meðferð upplýsinga

VÍS hefur sett sér öryggisstefnu í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000.


Öryggisstefnan byggist á staðlinum ÍST ISO/IEC 17799:2000 (sjá vef Staðlaráðs Íslands), starfsvenjum fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.

Öryggisstefnan er sett til að ...:

  • ... tryggja að upplýsingar séu eingöngu aðgengilegar þeim sem til þess hafa heimild.
  • ... standa vörð um nákvæmni og heilleika upplýsinga og úrvinnsluaðferða.
  • ... tryggja að notendur, sem til þess hafa heimild, hafi aðgang að upplýsingum og tengdum eignum fyrirtækisins eftir þörfum.