Hleð spilara!

Starfsemi og rekstur

VÍS nýtur sterkrar stöðu á tryggingamarkaðnum með liðlega þriðjungs markaðshlutdeild. Viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og ímynd félagsins er þekkt og rótgróin.


VÍS leggur ríka áherslu á skilvirkni, sveigjanleika og gæði í þjónustu sinni við viðskiptavini. Í því skini starfrækir VÍS 42 þjónustuskrifstofur víðsvegar um land og eru starfsmenn fyrirtækisins um 200 talsins.

Samkvæmt EES samningnum er VÍS heimilt að stunda tryggingastarfsemi á evrópska efnahagssvæðinu. Á grundvelli samningsins á VÍS í tryggingaviðskiptum í fjölda Evrópulanda, svo sem í Bretlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi og á Spáni. Að auki hefur VÍS réttindi til vátryggingastarfsemi á Írlandi, Ítalíu, í Finnlandi, Portúgal og í Eystrasaltsríkjunum.

Skipurit VÍS 

   

Vátryggingasvið

Vátryggingasvið ber ábyrgð á vátryggingarekstri VÍS og Lífís. Í því felst meðal annars að halda uppi öflugu áhættumati, réttri verðlagningu, umsýslu og vöruþróun. Erlend starfsemi félagsins heyrir einnig undir sviðið. Framkvæmdastjóri vátryggingasviðs er Friðrik Bragason. 

Tjónasvið

Tjónasvið ber ábyrgð á tjónaskoðunum, ákvörðun bóta og uppgjöri tjóna. Framkvæmdastjóri sviðsins er Agnar Óskarsson

Sölu- og þjónustusvið

Sölu- og þjónustusvið ber ábyrgð á þjónustu og sölu líf- og skaðatrygginga til einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana. Þjónustuskrifstofur félagsins heyra einnig undir sviðið auk markaðsdeildar og þjónustuvers. Framkvæmdastjóri sviðsins er Auður Björk Guðmundsdóttir.

Fjármálasvið

Fjármálasvið ber ábyrgð á innheimtu, bókhaldi, uppgjöri og áætlun félagsins, auk rekstrarmála. Framkvæmdastjóri sviðsins er Guðmar Guðmundsson.

Upplýsingatæknisvið

Upplýsingatæknisvið ber ábyrgð á rekstri upplýsingatæknimála félagsins s.s. stefnumótun, þróun upplýsingakerfa, rekstur alls vélbúnaðar og fjarskiptakerfa. Þá heyrir verkefnastofa VÍS undir upplýsingatæknisvið en það sér um verkefnastjórnun allra stærri verkefna félagsins. Framkvæmdastjóri sviðsins er Þórir Már Einarsson.

Starfsmannasvið

Starfsmannasvið ber ábyrgð á mannauðsmálum, fræðslumálum, ráðningum og launavinnslu auk þess að veita starfsmönnum og stjórnendum ráðgjöf.  Jafnframt tilheyrir skrifstofuumsjón og rekstur mötuneytis sviðinu. Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs er Anna Rós Ívarsdóttir.