Lífís
Líftryggingafélag Íslands hf. starfar undir vörumerkinu Lífís.
Félagið var stofnað árið 1990 við sameiningu Líftryggingafélagsins Andvöku og BÍ líftryggingar. Til sameiningarinnar kom í kjölfar sameiningar Samvinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands í Vátryggingafélag Íslands hf. Núverandi eigandi félagsins er Exista hf.
Náið samstarf er á milli VÍS og Lífís um tryggingaframboð, viðskiptakjör, markaðssetningu og ýmis önnur atriði er tengjast félögunum. Lengi vel bauð Lífís aðallega hefðbundnar áhættulíftryggingar en fjölbreytni í tryggingaframboði félagsins hefur aukist til muna í takt við þarfir og kröfur markaðarins.
Lífís er framsækið og metnaðarfullt fyrirtæki þar sem lögð er áhersla á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að þörfum fyrir tryggingalegt öryggi lífs þeirra og heilsu sé fullnægt ásamt því að skapa fjárhagslega hugarró ef áfall ber að höndum.
Lífís er vaxandi fyrirtæki þar sem hagkvæmni í rekstri er höfð að leiðarljósi. Slík hugsun hefur skilað sér í traustu og arðbæru fyrirtæki.
Hér að neðan eru Lífís tryggingar:
- Lífís líftrygging er hefðbundin líftrygging þar sem bætur eru greiddar í einu lagi við fráfall hins tryggða.
- Lífís sjúkdómatrygging tekur á því ef hinn tryggði greinist með sjúkdóm sem tryggingin nær til eða þurfi hann að gangast undir aðgerð. Eru honum þá greiddar bætur í einu lagi.
- Lífís söfnunarlíftrygging byggir á samspili reglubundinnar söfnunar og líftryggingar.
- Lífís söfnunartrygging er söfnunarlíftrygging sem byggir á samningi um sveigjanlegan sparnað en minni áhersla er lögð á líftryggingarþáttinn.
- Lífís fjárfestingatrygging eru söfnunarlíftrygging þar sem gerður er samningur um sveigjanlegan sparnað sem lagður er fyrir í eitt skipti eða fleiri eftir því sem tryggingartaka hentar. Lágmarks líftrygging er innifalin.
- Lífís lífeyrissöfnun er ætluð til varðveislu og ávöxtunar á viðbótar¬lífeyris¬sparnaði.
- Hóplíftryggingar, t.d fyrir starfsmenn fyrirtækja og meðlimi félagasamtaka.
- Uppvaxtarsjóður er söfnunarlíftrygging þar sem aðstandandi stofnar sjóð í nafni barns og leggur inn ákveðna greiðslu mánaðarlega. Sparnaðurinn er bundinn fram til 18 ára aldurs barnsins.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
