VÍS styrkir forvarnarleiksýninguna EF
VÍS og 540 Gólf leikhús hafa undirritað samning um að VÍS styrki forvarnarleiksýninguna EF. Um er að ræða leiksýningu sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna með tengingu inn á ýmsa þætti tilverunnar eins og vináttu, slys, umferð, ofbeldi, sjálfsmynd og sjálfsvíg. Markmiðið er að sýna unglingum fram á að þeir hafi val, og að sakleysislegar skyndiákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það að reykja eina hasspípu eða vera í félagsskap þeirra sem leggja stund á fíkniefnaneyslu getur hrundið af stað dapurlegri atburðarás. Það að segja já við E-pillu getur verið fyrsta skrefið á langri og miður fallegri ævisögu. Ásamt leiksýningunni verður gagnvirk heimasíða þar sem hægt verður að nálgast allar upplýsingar sem viðkoma sýningunni eins og lög úr henni, myndir, handrit verksins, söngtexta, myndbönd og tengla á síður er geyma nánari upplýsingar um umfjöllunarefni verksins og gagnast geta unglingum og aðstandendum þeirra.
Sýningin verður í Kassanum í Þjóðleikshúsinu og er ætluð börnum í 9. og 10. bekk. Leikarar eru Ólöf Jara Skagfjörð, Ævar Þór Benediktsson og Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Fræðsluhlið verksins er að öllu leiti unnin í samstarfi við fagaðila s.s. SÁÁ, Lýðheilsustöð, VÍS og fl.
Nokkrar staðreyndir:
- • 142 strákar og 95 stelpur yngri en 19 ára voru lögð inn á Vog á síðasta ári
- • 74% þeirra notuðu annað en áfengi sem aðal vímuefni.
- • 3,4 prósent af árgangi ’84 höfðu leitað sér hjálpar á Vogi árið 2004. Þá var ekkert þeirra orðið 20 ára. Þetta hefur heldur versnað síðustu ár
- • Unglingar (19 ára og yngri) eyddu samtals 3.173 legudögum á Vogi á síðasta ári
- • Um 160 þeirra neyttu kanabisefna daglega
- • 110 þeirra voru stórneytendur Amfetamíns.
- • Um 50 þeirra voru stórneytendur E-pillunar og 20 þeirra stórneytendur kókaíns.
- • 50 sprautuðu sig reglulega í æð.
- • 3 banaslys urðu í umferðinni árið 2009 þar sem ölvun ökumanns var talin aðalorsök slyss.
- • 31% ölvunarakstursslysa verða hjá ökumönnum 24 ára og yngri.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
