Hleð spilara!

Skólabyrjun og umferðin

18.08.2010

                                     

Ákveðinn sjarmi er alltaf yfir skólabyrjun á hverju hausti. Börnin fara af stað að morgni dags með tösku á baki, komast í sína rútínu, hitta félagana og fara yfir sumarið. Að mörgu er þó að hyggja til að allt fari rétt og örugglega fram. Umferðin er stór þáttur þar. Í raun skiptir ekki öllu hvort um byrjendur í skólagöngu er að ræða eða börn sem eru búin að vera lengur í skóla. Þau eldri taka oft meiri áhættu t.d. með því að stytta sér leið, sem oftast er ekki öruggasta leiðin. Hér að neðan eru nokkrir góðir punktar fyrir foreldra til að auka öryggi barna sinna. 
• Gefðu þér tíma til að fara yfir öruggustu leiðina í skólann með barninu. Hún er yfirleitt leiðin þar sem barnið fer sem sjaldnast yfir götu. Gakktu fyrstu dagana með barninu ef það er byrjandi í skólanum. 
•  Ítrekaðu við barnið að það stoppi áður en það fer yfir götu, líti vel til beggja hliða, hlusti og noti gangbraut til að fara yfir ef hún er til staðar. 
• Upplýstu barnið um að ekki sé víst að ökumaður sjái það þó svo að það hafi séð bílinn og að alltaf sé best að gera ráð fyrir því að ökumaður hafi ekki séð það. 
• Bentu barninu á að ganga ekki yfir bílastæði skólans heldur meðfram því og að bílastæði sé ekki leikvöllur.
• Kynntu þér hvort skólinn er með reglur um hjólreiðar barna til og frá skóla. Ef barnið fer hjólandi tryggðu að barnið sé með hjálm og gangi vel um hann þegar það geymir hann í skólanum.
• Í allmörgum skólum eru skólarútur notaðar. Farðu yfir helstu öryggisatriði með barninu þ.e. að það standi ekki of nærri rútunni þegar hún kemur, fari í röð en troðist ekki og spenni alltaf beltin. 
• Ef foreldri ekur barninu í skólann þá er það best varið í aftursæti fram að 12 ára aldri. Jafnframt þurfa börn að vera í sérstökum öryggisbúnaði umfram bílbelti eins og bílsessu, með eða án baks, þar til þau hafa náð 36 kg þyngd. Þegar barnið fer úr bílnum er alltaf öruggast að barnið fari út gangstéttar megin, en ekki umferðarmegin.
• Barn með endurskinsmerki sést fimm sinnum fyrr heldur en barn sem ekki er með endurskinsmerki. Tryggðu að barnið þitt sjáist í umferðinni þegar rökkva tekur. 
•  Sem ökumaður virtu hraðatakmarkanir í kringum skóla, sýndu varkárni og stoppaðu fyrir gangandi vegfarendum. Mundu jafnframt að þú ert fyrirmynd barna í umferðinni.

Til baka