Hleð spilara!

Bílrúðuviðgerðir

23.07.2010

Ef þú ert með bílrúðutryggingu hjá VÍS og verður fyrir því óláni að fá stein í framrúðuna hvetjum við þig til að fara með bílinn á bílrúðuverkstæði við fyrsta tækifæri. Þar meta sérfræðingar hvort skipta þurfi um framrúðu eða hvort hægt sé að gera við hana.

Sé skemmdin minni en 100 kr. peningur og ekki í sjónlínu ökumanns eru góðar líkur á því að hægt sé að gera við rúðuna. Engin sjálfsábyrgð gildir í tilfelli bílrúðuviðgerðar.

Ef framrúðan skemmist skal setja hringlaga límmiða með VÍS-merkinu yfir skemmdina strax til að forðast óhreinindi og raka. Þannig eykur þú líkur á að rúðuviðgerðin heppnist. Þennan límmiða getur þú nálgast á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Bílrúðuviðgerð er varanlegur kostur.

Nánari upplýsingar og lista yfir bílrúðuverkstæði er að finna hér.

Til baka