Hleð spilara!

Golfmót VÍS

21.07.2010



Á dögunum var árlegt golfmót VÍS haldið á velli GR í Grafarholti. Það voru 128 keppendur sem mættu til leiks á þessum fagra föstudegi og var hart barist í blíðunni. Í karlaflokki án forgjafar sigraði Hjörtur Brynjarsson (GSE) en hann lék holurnar átján á 74 höggum. Í kvennaflokki án forgjafar sigraði Þorbjörg Albertsdóttir (GK) á 94 höggum. Valur Stefánsson vann punktakeppnina en hann fékk 42 punkta fyrir hringinn.

Nándarverðlaun
2 hola - Birgir Hákonarson - 1,00
11 hola - Bjarni Már Gylfason - 1,14
18 hola í öðru höggi - Ragnar Guðgeirsson - 2,38

Hér eru nokkrar myndir frá mótinu.










Til baka