Hleð spilara!

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar og VÍS

14.07.2010

Jafningjafræðslan og VÍS bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð sem hefst kl. 14:00 næstkomandi föstudag á Austurvelli. Hátíðin verður öll með glæsilegasta móti og þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk. Fram koma: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Tónlistarmennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni. Þar fyrir utan verður grínarinn Þorsteinn Guðmundsson með gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins Hússins verður í fullum gangi en þar er hægt að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri.

Þá verða einnig gefnar pylsur,  Fanta lemon, candy-floss og smokkar frá ONE á meðan byrgðir endast. Gestir og gangandi geta einnig unnið sér inn margskonar vinninga frá fjölmörgum fyrirtækjum í happadrætti Jafningjafræðslunnar þar sem miðinn kostar heilar 0 kr. Dregið verður á milli tónlistaratriða. Semsagt í stuttu máli þá verður ótrúlega gaman að hanga niður á Auturvelli næsta föstudag kl. 14:00 og eitthvað fram eftir degi, svo er Jafningjafræðslan búin að panta bongóblíðu.

Þessi skemmtun er að sjálfsögðu ókeypis og vímulaus!

Til baka