VÍS vinnur tvo Lúðra!
08.03.2010
Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin 2009 voru afhent á föstudaginn á Lúðrahátíð sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica og voru viðstaddir vel á fimmta hundrað gestir.
VÍS fékk Lúðurinn í tveimur flokkum. Annan fyrir markpóst og hinn fyrir vefborða í flokki almannaheillaauglýsinga fyrir aðra miðla en sjónvarp.

Markpóstur: Taktu dolluna - Golfmót VÍS
Auglýsandi: VÍS
Framleiðandi: Fíton
Almannaheillaauglýsingar / aðrir miðlar: Notaðu beltin, alltaf - Vefborði
Auglýsandi: Umferðarstofa og VÍS
Framleiðandi: Hvíta húsið
Innsendingar á þessu ári voru 374 og verðlaun veitt í 14 flokkum. Nánari upplýsingar um úrslit er að finna á www.imark.is.
Til baka
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
