Hleð spilara!

Athugasemdir FME eiga ekki við VÍS

22.02.2010

Á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) í dag kemur fram að FME hafi gert athugasemdir við viðskipti tveggja tryggingafélaga þegar iðgjöld og viðskiptahættir vátryggingafélaganna voru til skoðunar á síðari hluta ársins 2009.  Vegna þessa óskar VÍS eftir að fram komi að FME gerði ekki athugasemdir við iðgjöld eða viðskiptahætti VÍS, en einhverra hluta vegna kaus FME að tilgreina ekki hvaða félög var gerð athugasemd við.

Til baka