Lena kom sá og sigraði

Það var fullt út úr dyrum í Ölfushöllinni í kvöld þegar keppni fór fram í fjórgangi í Meistaradeild VÍS. Lena Zielinski, Lýsi, á Golu frá Þjórsárbakka stóð efst eftir forkeppni með einkunnina 7,37 og héldu þær stöllur fyrsta sætinu eftir æsispennandi A-úrslit.
Lena stóð efst eftir forkepnni með en önnur var Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Hestvit, á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu með einkunnina 7,30 og þriðji var Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á Loka frá Selfossi með einkunnina 7,23. Þau þrjú héldu öll sínum sætum eftir æsispennandi A- úrslit.
Margar stórglæsilegar sýningar litu dagsins ljós í kvöld og var spennan í hámarki á meðan úrslitin fóru fram.
Í einstaklingskeppninni er Sigurður Sigurðarson, Lýsi, kominn á toppinn með 18 stig, annar er Eyjólfur Þorsteinsson, Málningu, með 13 stig og jöfn í þriðja til fimmta sæti eru Árni Björn Pálsson, Líflandi, Lena Zielinski, Lýsi, og Hulda Gústafsdóttir, Árbakki / Hestvit, með 12 stig.
Í liðakeppninni er lið Málningar búið að skjóta sér á toppinn með 93 stig, í öðru sæti er lið Líflands með 75 stig og í því þriðja er lið Lýsis með 73 stig.
Nánari upplýsingar um Meistaradeild VÍS er að finna á vefsíðu deildarinnar - www.meistaradeildvis.is.
Mynd: Hestafréttir.is - www.hestafrettir.is.Til baka
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
