Hleð spilara!

Fjölmenni á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins

05.02.2010


Mikið fjölmenni mætti á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins í gær í húsakynni VÍS í Ármúla en ráðstefnan bar yfirskriftina "Forvarnir í fyrirrúmi". 


Á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins var sjónum einkum beint að áhættumati og atvikaskráningu. Fjallað var um áhættumat og forvarnir hjá sveitarfélögum og bændum og fulltrúar fyrirtækja í ólíkum rekstri gerðu grein fyrir atvikaskráningu og áhættumati í rekstri sínum.


Á ráðstefnunni voru forvarnarverðlaun VÍS veitt í fyrsta skipti fyrirtækjum sem eru til fyrirmyndar eða hafa náð góðum árangri í forvarnarmálum.  Á myndinni sést Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, með verðlaunagripinn góða.


Strætó bs. fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í forvarnarmálum. Á myndinni eru Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins og Guðmundur Örn Gunnarsson.


Bifreiðaverkstæðið Bílson fékk sömuleiðis viðurkenningu fyrir góðan árangur í forvarnarmálum. Á myndinni sjást Friðrik Bragason, framkvæmdastjóri Vátryggingasviðs VÍS, og Bjarki Harðarson, forstjóri Bílson.


Þörungarverksmiðjan fékk svo Forvarnarverðlaun VÍS 2010 en fyrirtækið þykir vera til fyrirmyndar í forvarnarmálum.

Stefnt er að því að forvarnarráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins verði árlegur viðburður.

Til baka