Ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins
02.02.2010
Næstkomandi fimmtudag, 4. febrúar, verður haldin ráðstefna um forvarnarmál fyrirtækja á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins. Á ráðstefnunni verður einkum einblínt á áhættumat fyrirtækja og atvikaskráningu. Ráðstefnan fer fram í húsakynnum VÍS í Ármúla 3, 5. hæð á milli kl. 13 og 16. Öll fyrirtæki eru hvött til að mæta og er aðgangur ókeypis. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru að finna hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
