Hleð spilara!
Þróttur og VÍS í samstarf
27.01.2010

Í gær var skrifað undir 3 ára samstarfssamning milli VÍS og knattspyrnudeildar Þróttar en VÍS verður aðalstyrktaraðili að árlegu knattspyrnumóti Þróttar sem nefnt verður "VÍS-mótið" næstu þrjú ár. Mótið er haldið í lok maí / byrjun júní árlega í Laugardalnum fyrir 6. flokk, 7. flokk og 8. flokka drengja og stúlkna. Markmið VÍS er að styðja Þrótt í íþróttalegu og uppeldislegu hlutverki sínu á svæðinu auk þess að stuðla að forvörnum.
Það var Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sölu- og þjónustusviðs VÍS, sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd VÍS og Sigurður Sveinbjörnsson fyrir hönd Þróttar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
