Meistaradeild VÍS 2010

Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum var formlega sett af stað í dag á Kjarvalsstöðum við Miklatún.
Á fundinum sýndu knapar Meistaradeildarinnar gæðinga sína á Miklatúni. Auk þess var keppni vetrarins kynnt og undirritaðir voru kostunarsamningar við þau fyrirtæki sem styðja við deildina í vetur.

Guðmundur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS undirritaði samning um áframhaldandi stuðning við deildina en VÍS hefur stutt vel við uppbyggingu hennar síðastliðin 4 ár. Á myndinni með Guðmundi er Rúnar Þór Guðbrandsson, stjórnarformaður Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum.
NOKKUR ORÐ UM MEISTARADEILD VÍS
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er mótaröð 7 móta með hálfs mánaðar millibili frá 28. janúar fram í lok apríl. Keppendur eru úrval bestu hestaíþróttamanna Íslands. Keppnin fer í Ölfushöllinni fram annað hvert fimmtudagskvöld. Meistaradeild í hestaíþróttum er rekin af félagi áhugamanna með sama nafni og studd af Félagi hrossabænda og Landssambandi hestamannafélaga.
Upplýsingar um Meistaradeild VÍS - www.meistaradeildvis.is.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
