Hleð spilara!

VÍS styrkir Barnaheill

18.12.2007

Í dag var afhentur peningastyrkur til Barnaheilla að upphæð 300.000 kr. Í stað þess að senda út jólakort þetta árið var ákveðið að styrkja samtökin. Styrkurinn rennur til starfsemi samtakanna hérlendis og erlendis. Barnaheill eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children og vinna að réttindamálum og velferð barna víða um heim. Barnaheill hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í öllu sínu starfi.


María Hrund Marinósdóttur markaðsstjóri afhenti Petrínu Ásgeirsdóttur framkvæmdastjóra Barnaheilla styrkinn fyrir hönd VÍS.

Til baka