Hleð spilara!

Fjölskyldutryggingar VÍS kallast nú allar F plús

09.11.2007

Mikil vöruþróun hefur átt sér stað undanfarna mánuði í fjölskyldutryggingum VÍS. Ný fjölskyldutrygging hefur litið dagsins ljós. Samhliða því var ákveðið að breyta nöfnum á eldri fjölskyldutryggingum félagsins og gera vöruframboðið þannig skýrara en áður.

Fjölskyldutryggingar VÍS kallast nú allar F plús.

  • F plús 1
  • F plús 2
  • F plús 3
  • F plús 4

F plús 4 er nýjasta tryggingin frá VÍS en hún er jafnframt víðtækasta fjölskyldutrygging félagsins. Með þessum breytingum teljum við okkur geta fullnægt þörfum viðskiptavina okkar betur en áður. Bótasvið trygginganna er mjög mismunandi og ættu allir að geta fundið fjölskyldutryggingu við sitt hæfi.

Kannaðu því málið vel og veldu þá tryggingu sem hentar þér best, nánari upplýsingar um tryggingarnar er að finna hér og þar má einnig finna skilmála trygginganna. Ef þú hefur einhverjar spurningar munu starfsmenn VÍS svara spurningum þínum með ánægju hvort sem er á næstu þjónustuskrifstofu eða í þjónustuveri í síma 560 5000.

Til baka