Hleð spilara!

VÍS fær viðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir fallegan frágang á lóð

22.08.2007

Borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, veitti VÍS viðurkenningu sl. föstudag fyrir fallegan frágang á lóð félagsins að Ármúla 3.  Ólafur Jónsson, rekstrarstjóri VÍS, veitti viðurkenningunni móttöku af hendi borgarstjóra við hátíðlega athöfn í Höfða. 

Viðurkenning til VÍS var veitt fyrir atvinnu- og stofnanalóðir:  Í umsögn um Ármúla 3 segir;  "Lóðin Ármúli 3 fær viðurkenningu fyrir fallegan frágang á lóð á áberandi stað. Það er alltof sjaldgæft að lagður sé metnaður í að prýða aðkomusvæði húsa með gróðri þar sem augljósar þarfir virðast fyrst og fremst vera að koma fyrir bílastæðum.  Á lóðinni Ármúla 3 hefur tekist vel til og lóðin er götumyndinni til sóma”.

Það er árlegur viðburður borgarstjóra að veita viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum og fyrir fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir.  Viðurkenningarnar eru veittar eftir tilnefningar frá vinnuhópi á vegum skipulagsráðs borgarinnar.

Til baka