Hleð spilara!

Bæklingur fyrir útlendinga um ölvunar- og hraðakstur

01.08.2007

Síðustu misseri hefur ölvunar- og hraðakstur færst í vöxt meðal útlendinga á Íslandi og þá einkum meðal þeirra sem koma til landsins til tímabundinnar vinnu og skilja aðeins sitt eigið tungumál. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar voru um 20% þeirra sem kærðir voru fyrir ölvunarakstur á fyrri hluta ársins erlendir ríkisborgarar og þeir voru einnig 6% þeirra sem kærðir voru fyrir hraðakstur. Ástæða þessara tíðu brota kann að vera þekkingarleysi á íslenskum lögum sem gilda um hrað- og ölvunarakstur.

VÍS hefur nú brugðist við þessari þróun með því að gefa út upplýsingabækling um þetta efni á fjórum tungumálum, auk íslenskunnar, þ.e. ensku, spænsku, rússnesku og pólsku. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um þau lög og reglur sem gilda um ölvunar- og hraðakstur á Íslandi og um viðurlög sem eru við því að brjóta þessar reglur. Bæklingurinn er unninn í samvinnu við Alþjóðahús og verður honum dreift á bílaleigur, umboðsskrifstofur erlendra starfsmanna og á stóra vinnustaði þar sem fjöldi útlendinga starfar. Bæklingnum verður einnig dreift til lögregluembættanna auk þess sem hægt er að nálgast hann á umboðs- og söluskrifstofur VÍS.

Með útgáfu þessa bæklings vill VÍS stuðla að því að útlendingar á Íslandi fái nauðsynlegar upplýsingar um þessi mál á eigin tungumáli og telur félagið að það geti leitt til þess að þeir aki síður undir áhrifum áfengis eða stundi hraðakstur.

Bæklingur fyrir útlendinga um ölvunar- og hraðakstur (pdf)

Til baka