Hleð spilara!
Gengið gegn slysum
25.06.2007
VÍS fagnar frumkvæði hjúkrunarfræðinga og hvetjur til þátttöku í göngu gegn slysum, þriðjudaginn 26.júní kl.17.00. Gengið verður bæði í Reykjavík og á Akureyri og hafa sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn slegist í hópinn.
Í Reykjavík verður haldið af stað frá sjúkrabílamóttöku Landspítalans við Hringbraut klukkan 17. Gengið verður fram hjá Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og endað við þyrlupall LSH í Fossvogi. Á Akureyri mun gangan hefjast á sama tíma við þyrlupall við FSA. Gengið verður niður Þórunnarstræti, suður Glerárgötu og endað á torginu þar sem Guðrún Eggertsdóttir sjúkrahúsprestur heldur stutta tölu. Að lokum verður 31 blöðru sleppt á báðum stöðum til minningar um þá sem létu lífið í umferðinni í fyrra.
Til baka- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
