Hleð spilara!

Fréttir af VÍS

Fréttir af starfssemi VÍS


03.02.2012

Strætó bs. hlýtur Forvarnarverðlaun VÍS 2012

Á ráðstefnunni Forvarnir í fyrirrúmi sem haldin var í dag var Strætó bs., ISAM og Norðurþingi veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í forvörnum og öryggismálum. Strætó bs. hreppti Forvarnarverðlaun VÍS 2012 en þau eru veitt fyrir framúrskarandi og fyrirmyndar forvarnir. Árangur Strætó í öryggismálum undanfarin þrjú ár er til sannkallaðrar eftirbreytni. Að meðaltali urðu um 300 tjón á ári áður en farið var í markvissar aðgerðir til að fækka þeim. Það tókst svo um munar því á síðasta ári...

Lesa nánar
03.02.2012

Forvarnir í fyrirrúmi - ráðstefna VÍS og...

Húsfyllir var á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins sem haldin var í dag undir yfirskriftinni "Forvarnir í fyrirrúmi". Sjónum var einkum beint að öryggismálum fyrirtækja allt frá hönnum til loka framkvæmda bæði í stórum verkum sem smáum. Ennfremur fengu gestir að vita hvernig breyta má úrgangi í verðmæti.

Lesa nánar
27.01.2012

Miklar leysingar í farvatninu

Skammt er stórra högga á milli í veðrinu hér á landi þessa dagana. Undanfarna daga hefur ófærð, hríðarbylur, fannfergi og snjóflóðahætta verið helsta umfjöllunarefnið. Í dag fer aftur á móti að hlána og gerir það svo af alvöru seinnipartinn á morgun með asahláku, sér í lagi á suður- og vesturlandi.

Lesa nánar
27.01.2012

Forvarnaráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2012

Fimmtudaginn 2. febrúar, verður árleg ráðstefna um forvarnar- og öryggismál fyrirtækja haldin á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins. Meðal annars verður fjallað um núllsýn í öryggismálum sem gengur út á að öll slys sé hægt að fyrirbyggja, eigin rannsóknir á vinnuslysum, eigið eldvarnaeftirlit, öryggi í vöruflutningum, innleiðingu öryggismenningar og fyrstu skrefin í umhverfismálum. Þá verða forvarnarverðlaun veitt fyrirtækjum sem sköruðu fram úr í forvarnar- og öryggismálum árið 2011.

Lesa nánar
27.01.2012

Frumkvæði og forysta æðstu stjórnenda í...

Í Viðskiptablaðinu í gær birtist grein forvarnarfulltrúa fyrirtækja hjá VÍS um hvernig æðstu stjórnendur fyrirtækja geta náð árangri í öryggismálum með því að sýna frumkvæði og forystu í þeim. Áður en stjórnendur fara í vegferð sína verða þeir að líta í eigin barm og spyrja sig meðal annars að því hvernig haga ég mínum eigin öryggismálum í og utan vinnu og er ég góð fyrirmynd?

Lesa nánar
20.01.2012

Fósturlandsins freyjur þjóðlegar á þorra

Það hljóp á snærið hjá karlkyns starfsmönnum VÍS í Ármúla í morgun þegar þeirra beið drekkhlaðið veisluborð að góðum og gömlum íslenskum sið. Hnallþórur, pönnukökur, flatkökur og brauðtertur í boði kvenkyns vinnufélaga í tilefni bóndadagsins.

Lesa nánar
19.01.2012

Öryggið borgar sig – tækifæri í kreppu

Við núverandi efnahags- og rekstraraðstæður hefur sjaldan reynt eins mikið á stjórnendur að hlúa að og efla öryggisþáttinn í starfsemi fyrirtækjanna. Stjórnendur fyrirtækja hafa iðulega í mörg horn að líta og á stundum leiðir það til þess að þeir einblína fyrst og fremst á kjarnastarfsemina sem hefur bein áhrif á vöxt fyrirtækisins og fyrir vikið sitja öryggismálin hugsanlega á hakanum.

Lesa nánar
16.01.2012

Strákarnir okkar á Facebook

Í gær hófst Evrópumótið í handknattleik í Serbíu. Fyrsti leikur Íslands er í kvöld en þá mæta þeiri liði Króata. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst klukkan 19:10. VÍS er eitt þeirra fyrirtækja sem kosta útsendingarnar frá mótinu á RÚV enda er félagið stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins.

Lesa nánar