Tjónaskoðun VÍS - tjóna- og áhættuskoðun
Í tjónaskoðun eru skoðuð ökutæki sem lent hafa í tjónum, en einnig er hægt að fara beint á svokölluð CABAS verkstæði sem eru með samning við Vátryggingfélag Íslands hf um kaup á þjónustu ef ökutækið er viðgerðarhæft.
Tjónaskoðun VÍS:
Tjónaskoðun VÍS, Smiðshöfða 3-5, 110 Reykjavík, sími 560 5080
Þeir viðskiptavinir sem búa langt frá tjónaskoðun VÍS er bent á að snúa sér til næstu þjónustuskrifstofu VÍS, eða til næsta CABAS verkstæðis, með ökutæki sitt í viðgerð.
CABAS verkstæði (sem eru með samning við VÍS)
Ef ökutæki er viðgerðarhæft er tjónþola bent á að snúa sér beint að næsta CABAS verkstæði með ökutæki sitt í viðgerð annars í tjónaskoðun VÍS eða á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. CABAS verkstæðið gerir viðgerðaráætlun sem er send ásamt myndum í tjónaskoðun VÍS til yfirferðar og samþykkis.
Útboð á bifreiðum
Vikulega eru útboð á bifreiðum sem lent hafa í umferðaróhöppum og eru tilboð í bifreiðarnar gerð hér á vefnum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
