Hleð spilara!
Forvarnalán
Viðskiptavinum stendur til boða að taka lán til endurbóta og forvarna á heimilum sínum.
Ástæðan
fyrir þessum lánum er sú að með reglulegu og góðu viðhaldi fasteigna
geta viðskiptavinir komið í veg fyrir tjón eða skemmdir sem annars gætu
átt sér stað. Auk þess viðhalda viðskiptavinir verðgildi eigna sinna.
Leitast verður við að hafa vexti á þessum lánum hagkvæma vexti.
Lánsfjárhæð
Miðað er við að lánsfjárhæð sé allt að 500.000 kr. Lánið er greitt út að endurbótum loknum.
Lánstími
Lánstími er 60 mánuðir og er með breytilegum vöxtum og verðtryggt. Ef lánað er til skemmri tíma en 60 mánaða þá er lánið óverðtryggt með breytilegum vöxtum.
Ábyrgðir - veð
Hvorki er krafist ábyrgða né veðs fyrir láninu.
Hafðu samband við næstu skrifstofu VÍS ef þú vilt fá nánari upplýsingar um þessi lán
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
