Hleð spilara!

Sóttdauðabætur

Útgerðarmenn hafa þnn kost að tryggja skipverja með líftryggingu ef veikindi leiða til andláts.


Tryggingin er líftrygging sem greiðir dánarbætur ef skipverji veikist um borð og veikindin leiða hann til dauða innan tveggja mánaða.

Félagið greiðir dánarbætur:

  • Ef skipverji veikist um borð í skipi því sem tilgreint er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun meðan það er á siglingu og veikindin leiða hann til dauða innan tveggja mánaða.

Félagið greiðir ekki dánarbætur:

  • Ef veikindi eru rakin til hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira eða þegar afleiðingar veikinda verða meiri vegna framangreindra atriða.