Hleð spilara!

Slysatrygging skólabarna - hópvátrygging

Sveitafélög hafa þann kost að tryggja börn í slysatryggingu skólabarna sem nær yfir þá vernd sem allir skráðir skólanemendur falla sjálfkrafa undir.


Tryggingin bætir skólabörnum líkamstjón sem verða vegna slysa. Allir skólanemendur sem eru skráðir í grunnskóla, leikskóla, dagskóla, á sumarnámskeið og á gæsluleikvelli eru sjálfkrafa vátryggðir, enda séu þessar stofnanir reknar af sveitarfélagi, einu eða í samvinnu við aðra. Aldur skólabarnsins skiptir ekki máli.

Félagið greiðir bætur:

  • Vegna slyss er vátryggður verður fyrir, hvernig svo sem slysið ber að, hver svo sem á sök á því og hvort sem slysið verður við nám eða leik, ef það leiðir til:
          • Andláts.
          • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Félagið greiðir slysakostnað vegna slyssins, þ.á m. kostnað vegna tannbrots. Slysakostnaður er eingöngu greiddur að því marki sem hann fæst ekki greiddur hjá Tryggingastofnun ríkisins.