Hleð spilara!

Slysatrygging sjómanna skv. siglingalögum

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á minni fiskibátum samkvæmt kjarasamningum LSS.


Tryggingin bætir sjómönnum slys sem þeir verða fyrir í starfi og er fyrir alla fiskimenn og farmenn á skipum undir 12 tonnum. Útgerðarmanni báts undir 12 tonnum er skylt skv. siglingalögum að tryggja sig og launþega sína á vinnutíma.

Tryggingin er í samræmi við kjarasamninga og bætir líkamstjón sjómanna enda leiði það til dauða, varanlegrar örorku, tímabundinnar óvinnufærni eða tannbrots. Hægt er að kaupa frítímatryggingu til viðbótar. Útgerðarmenn á skipum undir 12 tonnum geta einnig keypt tryggingu samkvæmt skaðabótalögunum.

Vátryggingin gildir við strendur Íslands nema annað komi fram.

Vinnuslysatrygging

Félagið greiðir:

Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir í starfi um borð í skipi því sem tilgreint er í vátryggingar-skírteini eða endurnýjunarkvittun og í vinnu í beinum tengslum við rekstur skipsins, ef það leiðir til:

    • Andláts
    • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
    • Tímabundins missis starfsorku
    • Kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.