Slysatrygging launþega
Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.
Tryggingin greiðir launþegum bætur vegna slysa sem verða í vinnu eða á beinni leið til eða frá heimili. Flestir velja einnig að tryggja persónulega muni starfsmanna sem viðbót við launþegatrygginguna.
Nokkuð misjafnt er eftir stéttafélögum hvernig þessari tryggingu er háttað en almennt er um að ræða dánar- og örorkubætur og oft dagpeninga. Hægt er að kaupa frítímatryggingu til viðbótar.
Félagið greiðir bætur vegna slyss:
Er vátryggður verður fyrir, ef það leiðir til andláts, varanlegrar læknisfræðilegrar örorku, tímabundins missis starfsorku eða tannbrots:
- Í starfi hjá vátryggingartaka og á eðlilegri leið frá heimili til vinnustaðar og frá vinnustað til heimilis. Ef vátryggður hefur vegna starfa síns viðlegustað utan heimilis, kemur viðlegustaður í stað heimilis.
- Í ferðum innanlands og utan sem farnar eru á vegum vátryggingartaka, enda sé ákvæði um slíkt í kjarasamningi sem tekur til vátryggðs.
- Við þátttöku í íþróttum, keppnum og leikjum á vegum vátryggingartaka eða starfsmannafélags vátryggðs og ætlast sé til þátttöku vátryggðs í slíkri iðkun sem hluti af starfi hans, enda sé ákvæði um slíkt í kjarasamningi sem tekur til vátryggðs.
- Í frítíma komi það fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Tannbrot er eingöngu innifalið í vátryggingunni þegar örorkubætur eru tilgreindar sem bótaþáttur. Félagið bætir þó ekki tennur sem brotna í vinnuslysi, sbr. lög um almannatrygingar, eða tennur sem brotna þegar vátryggður matast.
- Félagið greiðir kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.
- Ef jarðskjálfti, eldgos, flóð, skriðuföll eða aðrar náttúruhamfarir valda slysi í einum og sama atburði á mörgum vátryggðum einstaklingum takmarkast heildarbætur félagsins við kr. 200 milljónir. Bætur skiptast hlutfallslega á milli bótaþega. Takmörkun þessi gildir þótt hinir slösuðu séu ekki launþegar sama vátryggingartaka.
Félagið greiðir ekki bætur vegna slyss:
- Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum, sjá þó skilmála.
- Við fjallaklifur sem krefst sérstaks búnaðar, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki.
- Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
- Í handalögmálum, nema vátryggður hafi í starfi sínu engöngu brugðist við í sjálfsvörn.
- Við þátttöku í refsiverðum verknaði.
- Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
- Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
- Þegar bótaréttur vegna slyssins er fyrir hendi samkvæmt lögboðinni ökutækjatryggingu, þ.e. hvort heldur er úr ábyrgðartryggingu eða slysatryggingu ökumanns og eiganda, nema annað leiði af kjarasamningi. Sama gildir eigi vátryggður rétt til bóta samkvæmt reglum umferðarlaga um tjón af völdum óþekktra og óvátryggðra ökutækja.
- Í starfi hjá öðrum en vátryggingartaka hvort sem um er að ræða launað starf eða ekki eða arðbært starf í eigin þágu sem atvinnuslysahætta fylgir.
- Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
