Hleð spilara!

Slysatrygging íþróttamanna - hópvátrygging

Tryggingin er góður kostur fyrir alla íþróttamenn sem vilja vera tryggðir við æfingar og í keppnum í þeirri íþrótt sem þeir stunda.


Tryggingin bætir íþróttamönnum líkamstjón sem verða vegna slysa í æfingum og keppnum. Greiddar eru bætur vegna slyss, enda leiði það til dauða, varanlegrar örorku og tímabundinnar óvinnufærni. Einnig bætir tryggingin kostnað vegna tannbrots. Slysakostnaður innanlands er innifalinn fyrir börn 15 ára og yngri. Einnig er hægt að innifela sjúkrakostnað erlendis sem er valkvæður bótaliður.

Slysatrygging íþróttamanna er hóptrygging fyrir íþróttafélög eða hópa.

Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir, ef það leiðir til:

  • Andláts
  • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku
  • Tímabundins missis starfsorku (dagpeningar)
  • Tannbrots
  • Innlendan slysakostnað fyrir 15 ára og yngri vegna slyssins. Slysakostnaður er eingöngu greiddur að því marki sem hann fæst ekki greiddur hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slysa sem verða:

  • Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, aksturs-íþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini.
  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitunar.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.