Hleð spilara!

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.


Tryggingin greiðir bætur vegna sjúkdóma og slysa hvort heldur í vinnu eða frítíma. Við töku tryggingarinnar er valin upphæð bóta vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar óvinnufærni eftir þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum eingöngu vegna slysa. Sjúkratryggingaþátturinn er eingöngu seldur sem viðbót við slysatryggingu.

Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum og er beiðni forsenda tryggingatöku.



Slysatrygging

Félagið greiðir:

  • Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir ef það leiðir til:
  • Andláts.
  • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Tímabundins missis starfsorku.
  • Tannbrots.
Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Tannbrot er eingöngu innifalið í vátryggingunni þegar örorkubætur eru tilgreindar sem bótaþáttur. Félagið bætir þó ekki tennur sem brotna í vinnuslysi, sbr. lög um almannatrygingar, eða tennur sem brotna þegar vátryggður matast.

  • Félagið greiðir kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slysa sem verða:

  • Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.

Sjúkratrygging

Félagið greiðir:

  • Bætur vegna sjúkdóms er vátryggður fær, ef hann leiðir til:
  • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Tímabundins missis starfsorku.
Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Félagið greiðir dagpeninga fyrir það tímabil sem vátryggður er í sóttkví á heimili eða sjúkrahúsi að fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Bætur greiðast á sama hátt og við sjúkdóm í slíkum tilfellum.
  • Félagið greiðir kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna sjúkdóms:

  • Sem hafði sýnt einkenni áður en vátryggingin gekk í gildi, nema að félagið hafi vitað um sjúkdóminn við gildistökuna og veitt vátrygginguna þrátt fyrir það.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurð-aðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds sjúkdóms og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Sem stafar af neyslu áfengis eða fíkniefna.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Sem beint eða óbeint orsakast af völdum hryðju-verka vegna hvers konar líffræðilegra eða efna-fræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar sjúkdóms verða meiri vegna framangreindra atriða.

Félagið greiðir ekki:

  • Bætur fyrir starfsorkumissi sem kona verður fyrir á meðgöngutíma, við fæðingu eða fósturlát, nema því aðeins að missir starfsorkunnar sé af völdum fylgikvilla. Í slíkum tilfellum er biðtími eigi skemmri en einn mánuður.