Örorkutrygging vegna slysa

Örorkutrygging er góður kostur fyrir þá sem eiga rétt á launum við tímabundna óvinnufærni en vilja vera slysatryggðir ef afleiðiingar slyss leioða til örorku.


Tryggingn greiðir bætur vegna slyss ef það leiðir til varanlegrar læknisfræðilegrar örorku og er ætluð þeim sem vilja vera slysatryggðir gegn örorku eingöngu.

Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum.

Beiðni er forsenda tryggingatöku

Félagið greiðir:

  • Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir ef það leiðir til varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slysa sem verða:

  • Af völdum skráningarskylds vélknúins ökutækis á Íslandi eða vélknúins ökutækis, sem skráð er erlendis, þar sem lögboðið er að vátryggja vegna slíkra slysa.
  • Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
  • Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki.
  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurð-aðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.