Hleð spilara!
Líftrygging
Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.
Lífís líftrygging er áhættulíftrygging en í því felst að líftryggingarfjárhæð er greidd út í einu lagi ef hinn líftryggði deyr á tryggingartímanum. Engu máli skiptir hvort orsökin er slys eða sjúkdómur.
- Félagið greiðir bætur vegna andláts vátryggðs.
- Hafi vátryggður framið sjálfsvíg ber félagið ábyrgð ef meira en ár hefur liðið frá því að ábyrgð þess hófst eða telja má sannað að vátryggingin hafi verið tekin án þess að sjálfsvíg hafi verið haft í huga.
- Félagið greiðir ekki bætur vegna andláts barns vátryggðs, auk stjúp- og fósturbarna hans, sem rekja má beint eða óbeint til ástands þess fyrir gildistöku vátryggingarinnar og vátryggður vissi um eða mátti vita um. Með sama hætti greiðast ekki bætur vegna andláts barns vátryggðs, auk stjúp- og fósturbarna hans, sem rekja má til ástands barns fyrir þann tíma er vátrygging tekur gildi, sbr. c. lið 1. mgr. 86. gr. laga um vátryggingarsamninga nr. 30/2004, enda aflar félagið ekki upplýsinga um heilsufar barnsins. Um kjörbörn gildir ennfremur að félagið er ekki bótaskylt ef hægt er að rekja andlát til ástands sem barnið var haldið áður en það var ættleitt.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
