Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.


Tryggingin bætir líkamstjón sem verða vegna slyss hvort sem það er í vinnu eða frítíma. Hægt er að kaupa slysatryggingu sem gildir eingöngu á vinnutíma. Við töku tryggingarinnar er valin upphæð bóta vegna varanlegrar örorku og dagpeninga vegna tímabundinnar óvinnufærni eftir þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að bæta við dánarbótum.

Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum.

Beiðni er forsenda tryggingatöku.

Félagið greiðir:

Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir ef það leiðir til:

  • Andláts.
  • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Tímabundins missis starfsorku.
  • Tannbrots.
Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Tannbrot er eingöngu innifalið í vátryggingunni þegar örorkubætur eru tilgreindar sem bótaþáttur. Félagið bætir þó ekki tennur sem brotna í vinnuslysi, sbr. lög um almannatrygingar, eða tennur sem brotna þegar vátryggður matast.
  • Félagið greiðir kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slysa sem verða:

  • Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki, nema annað komi fram á vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun
  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.