Hleð spilara!

Persónutryggingar

Slysin gera ekki boð á undan sér og því mikilvægt öllum atvinnurekendum að huga að slysa- og sjúkratryggingum fyrir sig og sitt starfsfólk.


Slysa- og sjúkratryggingar eru vátryggingar þar sem bætur eru greiddar verði vátryggður fyrir slysi eða heilsutjóni. Helstu gerðir slysatrygginga eru almennar slysatryggingar og sjúkra- og slysatryggingar, samningsbundnar slysatryggingar ýmissa starfsstétta og ferðatryggingar.

Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.Meira

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.Meira

Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.Meira

Staðgengilstrygging

Ætluð sjálfstæðum atvinnurekendum sem vilja tryggja sig gegn auknum launakostnaði forfallist vátryggðir starfsmenn vegna slysa og/eða sjúkdóma.Meira

Rekstrarstöðvun v. slysa og sjúkdóma

Læknum, tannlæknum og einyrkjum sem byggja rekstarafkomu á eigin vinnuframlagi er ráðlagt að taka rekstrarstöðvunartryggingu vegna slysa og/eða sjúkdóma.Meira

Slysatrygging sjómanna

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á stærri bátum og skipum samkvæmt kjarasamningum.Meira

Slysatr. sjómanna skv. siglingalögum

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á minni fiskibátum samkvæmt kjarasamningum LSS.Meira

Sóttdauðabætur

Útgerðarmenn hafa þnn kost að tryggja skipverja með líftryggingu ef veikindi leiða til andláts.Meira

Slysatrygging íþróttahópa

Tryggingin er góður kostur fyrir alla íþróttamenn sem vilja vera tryggðir við æfingar og í keppnum í þeirri íþrótt sem þeir stunda.Meira

Slysatrygging skólabarna

Sveitafélög hafa þann kost að tryggja börn í slysatryggingu skólabarna sem nær yfir þá vernd sem allir skráðir skólanemendur falla sjálfkrafa undir.Meira

Örorkutrygging v. slysa

Örorkutrygging er góður kostur fyrir þá sem eiga rétt á launum við tímabundna óvinnufærni en vilja vera slysatryggðir ef afleiðiingar slyss leioða til örorku.Meira

Innlendur sjúkrakostnaður

Atvinnurekendur sem ráða erlenda starfsmenn þurfa að tryggja þá tímabundið gegn innlendum sjúkrakostnaði. Meira

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.Meira

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm. Meira

Dæmi um tjón sem voru bætt

Vinnuslys

Um haustið 2008 varð vinnuslys á byggingarstað. Tjónþolinn var að vinna við loftræstikerfi er hann missir loftræstistokkinn niður með þeim afleiðingum að önnur hendin klemmist á milli stokks og vinnulyftu. Afleiðingar slyssins voru meiðsl á fingrum. Vinnuveitandi tjónþola var með í gildi slysatryggingu launþega sem greiddi bætur vegna þessa slyss.