Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja
Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns og eiganda eru skyldutryggingar samkvæmt umferðarlögum. Öll skráningarskyld vélknúin ökutæki eiga að vera tryggð þessum tveimur tryggingum og hvílir vátryggingarskyldan á eiganda ökutækisins eða þeim aðila sem hefur varanleg umráð þess.
Ábyrgðartrygging bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun ökutækis. Tryggingin bætir ekki tjón sem verður á ökutæki þess aðila sem veldur tjóninu.
Slysatrygging ökumanns og eiganda gildir fyrir ökumann og eiganda ef hann er farþegi í eigin ökutæki. Ef ökumaður er valdur af slysi fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Eins ef eigandi ökutækis er farþegi í sínu eigin ökutæki fær hann líkamstjón sitt bætt úr þessari tryggingu. Aðrir farþegar en eigandi eru hins vegar vátryggðir í ábyrgðartryggingu ökutækisins.
Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækis
Vátryggingin nær til:
- Sérhverrar skaðabótakröfu sem vátryggðum er skylt að vátryggja gegn samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987, sem eigandi eða umráðamaður hins vátryggða ökutækis, vegna tjóns er hlýst af notkun þess.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir á ökutækinu sjálfu eða öðrum eignum vátryggingartaka eða vátryggðs. Þó bætir vátryggingin skemmdir á eigin bifreið vátryggðs af völdum áreksturs hins vátryggða ökutækis.
- Lögboðin slysatrygging ökumanns og eiganda
- Vátryggingin bætir líkamstjón vegna slyss sem:
- Ökumaður verður fyrir við stjórn hins vátryggða ökutækis samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Vátryggingartaki verður fyrir sem farþegi í hinu vátryggða ökutæki, eða af völdum þess samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Bílrúðutrygging (Valkvæð)
Vátryggingin bætir:
- Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins ásamt ísetningarkostnaði. Það telst ekki brot þótt flísist úr rúðu eða hún rispist.
Vátryggingin bætir ekki:
- Rúðu sem brotnar við úrtöku eða ísetningu.
- Tjón vegna afnotamissis ökutækisins þegar rúða brotnar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
