Kaskó
Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.
Tryggingin er valfrjáls og bætir tjón á ökutækjum m.a. af völdum árekstrar, áaksturs, veltu, bruna eða skemmdarverks.
Kaskó hefur víðtækasta bótasviðið af kaskótryggingum og er fáanleg á allar gerðir ökutækja. Allir þeir sem kaupa bíl ættu að íhuga að taka kaskó því tjón á ótryggðum bíl getur haft veruleg áhrif á efnahag bíleigandans.
Kaskó tryggingin er oftast sett sem skilyrði ef bifreiðakaup eru fjármögnuð af banka eða annarri lánastofnun. Allir sem vátryggingartaki hefur veitt heimild til þess mega aka ökutækinu.
Í öllum kaskó tjónum ber vátryggingartaki sjálfsábyrgð.
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Áreksturs þess og annars farartækis, s.s. bifreiðar eða bifhjóls.
- Áaksturs.
- Veltu og hraps.
- Útafaksturs.
- Grjóthruns, skriðufalls, snjóflóðs úr fjallshlíð, aur- eða vatnsflóðs, þó ekki vegna sjávarflóða.
- Eldsvoða, eldingar eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Þjófnaðar eða ef tilraun er gerð til þjófnaðar á því.
- Óveðurs ef ökutækið fýkur eða vélarhlíf, kistulok eða hurðir þess fjúka upp, einnig ef það skemmist vegna áfoks eða áhruns af völdum óveðurs, þó ekki ef sandur, möl, aska, vikur eða önnur laus jarðefni fjúka á það. Með óveðri er átt við þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu samkvæmt vottorði Veðurstofu Íslands. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað, þegar tjónið varð, skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu, hvort almennt eignatjón hefur orðið á svæðinu af völdum veðurs er tjónsatburðurinn átti sér stað.
- Flutnings þess um landveg á eða af flutningstæki eða á skipi milli hafna. Skemmdir sem verða þegar það er flutt á milli hafna, bætast þó ekki nema um árstryggingu sé að ræða.
- Þess að pallur vörubifreiðar fer af eða á hliðina þegar honum er lyft, hvort sem ökutækið sjálft veltur eða ekki.
- Skemmdarverka sem unnin eru af ásettu ráði af öðrum en vátryggðum.
- Þjófnað á hljómtækjum hins vátryggða ökutækis, þó að hámarki þá fjárhæð sem tiltekin er í vátryggingar-skírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins, þó ekki við úrtöku og ísetningu. Það telst ekki rúðubrot þótt flísist eða kvarnist úr rúðu eða hún rispast.
- Björgunar- eða flutningskostnað til næsta viðgerðarverkstæðis sem félagið fellst á ef ökutæki verður óökufært vegna bótaskylds tjóns á Íslandi.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir er aðeins varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeymi og gler, sbr. þó skilmála.
- Þjófnað á einstökum hlutum ökutækisins, sbr. þó gr. skilmála.
- Skemmdir sem hljótast af því að laust grjót hrekkur upp undir ökutækið í akstri.
- Skemmdir sem hljótast af því að ökutækið tekur niðri á ójöfnum, svo sem hryggjum eftir veghefla, jarðföstu og lausu grjóti.
- Skemmdir á hvers konar aukaútbúnaði ökutækisins, t.d. tengivögnum, farsímum, GPS-tækjum, tal-stöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.
- Skemmdir sem verða á ökutækinu vegna þátttöku í aksturskeppni eða æfingu fyrir slíka keppni.
- Skemmdir á ökutækinu vegna dýra.
- Skemmdir af völdum sjóbleytu.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
