Hleð spilara!

Hálfkaskó

Hálfkaskó hentar vel þeim bifreiðaeigendum sem aka mikið úti á þjóðvegum.


Tryggingin er valfrjáls og bætir tjón á ökutækjum þegar ökumaður eða eigandi á sjálfur sök á óhappinu eða verður fyrir utanaðkomandi, bótaskyldu tjóni sem veldur skemmdum á ökutækinu. Hálfkaskó er einkum hugsuð fyrir þá bifreiðaeigendur sem aka mikið úti á þjóðvegum, en lítið í þéttbýli þar sem umferð er mikil.

Bótasviðið er þrengra en bótasvið Al-kaskótryggingarinnar og tekur mið af þeim tjónaorsökum sem eru algengastar utan þéttbýlis.

Vátryggingin bætir tjón vegna:

  • Veltu og hraps.
  • Eldsvoða, eldingar eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Auk skemmda á ökutækinu nær vátryggingin til skemmda sem samtímis verða á varahlutum og þeim fylgihlutum ökutækisins sem teljast mega tilheyra eðlilegum útbúnaði þess þegar tjónið varð, enda séu hlutir þessir þá í ökutækinu. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Þjófnaðar eða ef tilraun er gerð til þjófnaðar á því.
  • Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækisins, þó ekki við úrtöku og ísetningu. Það telst ekki rúðubrot þótt flísist eða kvarnist úr rúðu eða hún rispast.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Skemmdir vegna veltu eða hraps séu þær afleiðing áreksturs eða áaksturs.
  • Skemmdir er stafa af hvers konar náttúruhamförum, sbr.skilmála. Þó bætast skemmdir er verða ef ökutækið fýkur út af akbraut og veltur.
  • Skemmdir vegna veltu eða hraps og aðeins varða hjól og hjólbarða.
  • Skemmdir af eldsvoða af völdum áreksturs eða áaksturs.
  • Skemmdir á hreyfli vegna sprenginga í strokkum.
  • Þjófnað á einstökum hlutum ökutækisins.
  • Skemmdir á hvers konar aukaútbúnaði ökutækisins, t.d. tengivögnum, farsímum, GPS-tækjum, tal-stöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.
  • Skemmdir sem verða á ökutækinu vegna þátttöku í aksturskeppni eða æfingu fyrir slíka keppni.