Ökutækjatryggingar
Nauðsynlegt er fyrir eigendur ökutækja að hafa tryggingar sínar í lagi. Samkvæmt umferðarlögum er skylt að tryggja öll skráningarskyld vélknúin ökutæki með ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Auk lögboðnu trygginganna býður VÍS upp á víðtækar frjálsar tryggingar og ættu viðskiptavinir því að geta tryggt ökutæki sín eins vel og vera má.
Lögboðin ábyrgðartryggingÖllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Meira |
BílrúðutryggingBílrúðutrygging er valkvæð trygging sem er seld með lögboðinni ábyrgðatryggingu ökutækis. Vátryggður ber 15% eigin áhættu af heildar tjónskostnaði ef skipta þarf um rúðu. Ekki þarf að greiða eigin áhættu ef gert er við rúðuna. Meira |
BrunatryggingBrunatrygging er fyrir þá eigendur ökutækja sem ekki telja þörf á kaskótryggingu.Meira |
Dráttarvélar í landbúnaðiTryggingin er ætluð eigendum dráttarvéla sem notaðar eru til landbúnaðarstarfa og bætir hún tjón á vélunum.Meira |
Dæmi um tjón sem voru bætt
Ekið á kyrrstæðan bíl
Um vetur 2007 var bifreið ekið á kyrrstæðan bíl á bílastæði fyrir utan fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu. Mikil hálka var á stæðinu og náði ökumaður bílsins ekki að stöðva bifreið sína með þeim afleiðingum að keyrt var inn í hlið bíls sem var kyrrstæður í sínu bílastæði. Ökumaður bifreiðarinnar var með í gildi ábyrgðartryggingu ökutækis sem bætti eiganda kyrrstæða bílsins tjón á bíl sínum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
