Hleð spilara!
Farmtryggingar B
Flestir inn- og útflytjendur ættu að vera með farmtryggingar fyrir farminn sem fluttur er á milli staða.
Tryggingin bætir tjón sem verða við flutning á farmi á milli staða. Þessi skilmáli hentar vel þeim vörum sem þola hnjask í flutningi og bætir í raun bara altjón á farminum. Hráefni til matvælaiðnaðar eins og hrísgrjón eru þannig oft tryggð með farmtryggingarskilimála B.
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Elds eða sprengingar.
- Þess að skip eða flutningsfar strandar, tekur niðri, sekkur eða hvolfir.
- Þess að flutningstæki á landi hvolfir eða fer út af spori.
- Þess að skip, flutningsfar eða flutningstæki rekst á eða snertir fastan eða fljótandi ytri hlut.
- Losunar á farmi í neyðarhöfn.
- Jarðskjálfta, eldgoss eða eldingar.
- Samtjónsfórnar.
- Þess að farmi er varpað fyrir borð eða honum skolar fyrir borð.
- Þess að sjór eða ósalt vatn úr stöðuvatni eða á kemst í skip, flutningsfar eða flutningstæki, gáma, flutningsvagna eða geymslustað.
- Algers tjóns á sjálfstæðum einingum sem falla fyrir borð eða detta niður við lestun eða losun skips, flutningsfars eða flutningstækis.
- Samtjónsframlög og björgunarkostnað sem jafnað er niður eða ákveðinn er samkvæmt flutnings-samningnum og/eða gildandi lögum og venjum og stofnað er til í þeim tilgangi að forðast hvers konar tjón.
- Tjón vátryggðs vegna endurkröfu sem kann að falla á hann sem eiganda farms vegna sérreglu um ábyrgð í beggja sök í árekstri (Both to Blame Collision Clauses) í flutningssamningi.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Venjulegs leka, venjulegrar rýrnunar í þunga eða rúmmáli, eðlilegs slits eða tæringar á hinu vátryggða.
- Innri skemmdar eða eðlis hins vátryggða.
- Tafar, jafnvel þótt hún hafi orðið vegna bótaskylds tjóns. Þetta gildir þó ekki um kostnað sem fellur undir skilmálann.
- Gjaldþrots eða fjárhagslegra vanefnda eiganda skips, leigutaka eða rekstraraðila þess.
- Skemmdarverka.
- Farbanns, fartafar eða kyrrsetningar eða tilrauna til slíks og afleiðinga sem af því stafa.
- Tundurdufla, tundurskeyta, sprengja eða annarra yfirgefinna stríðsvopna.
- Hryðjuverka eða pólitískra aðgerða.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
