Hleð spilara!
Farmtryggingar A
Flestir inn- og útflytjendur ættu að vera með farmtryggingar fyrir farminn sem fluttur er á milli staða.
Tryggingin er skaðatrygging sem bætir tjón sem verða við flutning á farmi milli staða. Farmtrygging bætir eingöngu vöruna sjálfa en ekki afnotamissi eða tapaða álagningu. Skilyrði þess að hægt sé að tryggja vörur í farmtryggingu er að hún sé flutt af viðurkenndum flutningsaðila. Þessi skilmáli hentar fyrir vörur sem ekki mega við neinu hnjaski á leið sinni. Hann tekur þannig t.d. á rispum á bílum eða skemmdum á búslóð.
Vátryggingin bætir:
- Tjón á hinu vátryggða af völdum skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi.
- Samtjónsframlög og björgunarkostnað sem jafnað er niður eða ákveðinn er samkvæmt flutningssamningnum og/eða gildandi lögum og venjum og stofnað er til í þeim tilgangi að forðast hvers konar tjón.
- Eðlilegan kostnað við að losa hið vátryggða, geyma það og senda áfram til ákvörðunarstaðar vátryggingarinnar ef umsaminni ferð verður slitið áður en henni lýkur vegna bótaskylds tjóns. Ákvæði þetta gildir ekki um samtjónsframlög og björgun.
- Sjórán.
- Tjón vátryggðs vegna endurkröfu sem kann að falla á hann sem eiganda farms vegna sérreglu um ábyrgð í beggja sök í árekstri (Both to Blame Collision Clauses) í flutningssamningi.
Vátryggingin bætir ekki skemmdir, kostnað eða það að vara glatast ef það stafar af:
- Venjulegum leka, venjulegri rýrnun í þunga eða rúmmáli, eðlilegu sliti eða tæringu á hinu vátryggða.
- Innri skemmd eða eðli hins vátryggða.
- Töf, jafnvel þótt hún hafi orðið vegna bótaskylds tjóns. Þetta gildir þó ekki um kostnað sem fellur undir skilmálann.
- Gjaldþroti eða fjárhagslegum vanefndum eiganda skips, leigutaka eða rekstraraðila þess.
- Farbanni, fartöf eða kyrrsetningu og afleiðingum sem af því stafa eða tilraunum til slíks.
- Tundurdufli, tundurskeyti, sprengju eða öðrum yfirgefnum stríðsvopnum.
- Hryðjuverkum eða pólitískum aðgerðum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
