Rekstrarstöðvunartrygging vegna véla

Er mikilvæg flestum framleiðslufyrirtækjum og bætir hún rekstrartap vegna rekstrarstöðvunar af völdum tjóna á vélum.


Tryggingin bætir rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar sem leiðir til samdráttar í vörusölu eða þjónustu ef rekja má orsökina til bótaskylds tjóns á tryggðri vél af völdum skyndilegra eða ófyrirsjáanlegra óhappa. Forsenda tryggingartöku er að vélin sé vélatryggð hjá VÍS.

Við ákvörðun vátryggingarfjárhæðar er stuðst við upplýsingar úr rekstrarreikningi fyrir liðið ár og/eða áætlun fyrir yfirstandandi ár.

Vátryggingin bætir:

  • Rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar á vátryggingartímabilinu vegna bilunar þeirrar vélar sem sem tilgreind er á vátryggingarskírteininu eða endurnýjunarkvittun og leiðir til samdráttar í sölu, vöru eða þjónustu vátryggðs.
  • Það er skilyrði bótaskyldu skv. skilmála að fyrir hendi sé vélatrygging hjá félaginu sem bæti það tjón sem olli rekstrarstöðvuninni.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Aukið rekstrartap sem hlýst af verkbanni, verkfalli, rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
  • Aukið rekstrartap sem hlýst af almennum samdrætti í viðkomandi starfsgrein, eða vegna breytinga á markaðsstöðu vátryggðs eða sökum fjármagnsskorts hans.