Rekstrarstöðvunartrygging fyrir kúabú
Er hópvátrygging fyrir mjólkurframleiðendur innan Kaupfélags Skagfirðinga og bætir framlegðartap vegna rekstrarstöðvunar.
Tryggingin er hóptrygging fyrir mjólkurframleiðendur innan Kaupfélags Skagfirðinga. Hún bætir framlegðartap vegna stöðvunar á rekstri sem leiðir til samdráttar í mjólkurframleiðslu ef rekja má orsökina til bótaskylds tjóns á tryggðum búnaði eða húseign af völdum bruna eða óveðurs.
Vátryggingin bætir:
- Framlegðartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar á vátryggingartímabilinu og leiðir til samdráttar í mjólkurframleiðslu af völdum:
- Bruna.
- Óveðurs.
Vátryggingin tekur einnig til óhjákvæmilegs aukakostnaðar sem vátryggður verður fyrir á bótatímanum og beinlínis verður rakinn til þess að fjós vátryggðs verður ekki notað sökum bótaskylds atburðar sem vátrygging þessi tekur til.
Það er skilyrði bótaskyldu samkvæmt skilmála að fyrir hendi sé vátrygging á lausafé eða húseign sem bætir það tjón sem olli rekstrarstöðvuninni.
Vátryggingin bætir ekki:
- Aukið framlegðartap sem hlýst af rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fjármagnsskorts, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
- Aukið rekstrartap sem hlýst af verkbanni og/eða verkfalli.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
