Víðtæk eignatrygging
Víðtæk eignatrygging er gjarnan tekin á einstaka dýra muni sem fólk tekur með sér vegna vinnu eða á ferðalögum, svo sem myndavélar, hljóðfæri, vídeoupptökuvélar og fleiri samskonar hluti.
Tryggingin bætir tjón af völdum skyndilegs utanaðkomandi atviks og er víðtækari en aðrar lausafjártryggingar.
Víðtæk eignatrygging gildir hvar sem er í heiminum án tillits til búsetu meðan tryggðir hlutir eru í umsjá vátryggðs.
Vátryggingin bætir:
- Beint tjón á hinu vátryggða af völdum skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Sem orsakast af snöggum hita og/eða rakabreytingum.
- Sem stafa af eðlilegu sliti, galla, rangri samsetningu eða innri bilunum, svo sem vélrænum bilunum.
- Vegna taps eða tjóns sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
