Vélatrygging
Vélatrygging tryggir eigendur véla gegn ýmis konar tjónum eða óhöppum.
Tryggingin bætir tjón á föstum vélum, t.d. vélum í framleiðslu, sem kalla á viðgerðir eða skipti á hlutum m.a. af völdum óhappa í vinnslu, skammhlaupi, rangri uppsetningu eða óveðri. Miða skal vátryggingarfjárhæðina við nývirði vélarinnar ásamt fylgibúnaði og tilheyrandi kostnaði. Vélatrygging er almennt seld sem viðbót við brunatryggingu lausafjár þó að hægt sé að taka hana eina og sér.
Vátryggingin bætir tjón eða skemmdir á hinum vátryggðu vélum sem kalla á viðgerðir eða skipti á hlutum af völdum:
- Tilfallandi vinnsluóhappa svo sem þegar:
- Vél eða búnaður er vanstilltur.
- Hlífðarbúnaður bilar eða reynist gallaður.
- Hlutir losna eða aðskotahlutir komast í vélina.
- Þess að hlutir bresta vegna miðflóttakrafts.
- Vatnsskorts í gufukötlum eða þrýstikerjum.
- Yfir- eða undirþrýstings, nema atvik valdi sem eru undanskilin samkvæmt skilmála.
- Skammhlaups, of hárrar rafspennu eða of mikils rafstraums, nema orsakir séu atvik sem undanþegin eru samkvæmt skilmála
- Veikleika eða galla í hönnun, efni eða smíði og rangri uppsetningu, sbr. þó skilmála.
- Rangrar notkunar, kunnáttuleysis, vanrækslu eða ásetnings starfsmanna, með fyrirvara um gáleysis- og/eða ásetningsverknað sem fram kemur í skilmála.
- Storms.
- Hvers konar óhappa sem ekki eru undanþegin hér á eftir.
Vátryggingin bætir ekki tjón eða skemmdir af völdum:
- Ryðmyndunar, tæringar, rýrnunar eða slits á vél eða vélarhlutum vegna eðlilegrar notkunar eða annarra samfelldra áhrifa frá efnum eða andrúmslofti, óæskilegrar uppsöfnunar ryðs, leðju, ketilsteins eða annarra útfellinga.
- Bilunar vegna prófunar, of mikils álags, af ásettu ráði, eða vegna tilrauna sem fela í sér óeðlileg vinnsluskilyrði fyrir vélina.
- Eldsvoða, sprengingar, eldingar, hvort sem tjónið stafar beint eða óbeint af slökkvistarfi og því sem þessu fylgir: Niðurbroti, sundurtekt og hreinsun rústa.
- Þjófnaðar eða innbrots.
- Hvers konar veikleika eða galla sem voru fyrir hendi við gildistöku vátryggingarinnar sem vátryggðum eða starfsmönnum í ábyrgðarstöðum hjá honum var kunnugt um eða mátti vera kunnugt um.
- Orsaka sem framleiðandi eða seljandi hinna vátryggðu hluta ber ábyrgð á samkvæmt lögum eða gerðum samningi.
- Tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
Með "tímaskráningu" er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með "búnaði" er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við, vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með "kerfi" er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra, hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli á tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Félagið bætir hvorki óbein né afleidd tjón.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
