Hleð spilara!

Rafeindatækjatrygging

Rafeindatrygging er hugsuð fyrir eigendur rafeindatækja og veitir þeim vernd gegn margs konar tjónum eða óhöppum.


Tryggingin bætir tjón á uppsettum rafeindatækjum og hentar t.d. vegna heimilistölva og fyrir vélar með flókinn rafeindabúnað. Rafeindatrygging bætir tjón af völdum sóts, sviðnunar eða bráðnunar, skammhlaups, foks, skemmdarverks, ógætilegrar meðferðar, flutnings innanhúss, leka og raka.

Vátryggingin bætir skyndileg og óvænt tjón á hinu vátryggða vegna:

  • Sóts, ofhitnunar, sviðnunar og bráðnunar án þess að eldur verði laus.
  • Skammhlaups og bilana í veitukerfi rafveitu.
  • Óveðurs, þ.e. þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Tjón á hinu vátryggða af völdum úrkomu samfara óveðri bætist því aðeins að vindur hafi rofið þak, glugga eða aðra hluta hússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað, þegar tjónið varð, skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun um bótaskyldu vátryggingarinnar hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er tjónsatburðurinn átti sér stað.
  • Skemmdarverka.
  • Ógætilegrar meðferðar starfsmanna eða viðskiptavina.
  • Flutnings innanhúss og milli staða innan sama fyrirtækis, þó ekki ef flutningsaðili ber ábyrgð á tjóninu eftir lögum eða samningi.
  • Vatns eða vökva sem hellist niður eða lekur á hið vátryggða.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón af völdum eldsvoða.
  • Tjón sem ábyrgð seljanda eða framleiðanda nær til.
  • Tjón vegna rýrnunar, tæringar, slits, ryðs eða annarra umhverfisáhrifa á lengri tíma.
  • Tjón vegna galla eða rangrar samsetningar.
  • Tjón sem verða vegna innri bilana.
  • Tjón á hugbúnaði.
  • Óbeint eða afleitt tjón.
  • Tjón eða tap sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.