Glertrygging
Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.
Tryggingin bætir tjón á gleri sem brotnar eftir að það er komið á þann stað sem því er ætlað að vera. Að auki tekur tryggingin til kostnaðar við ísetningu nýs glers í stað þess sem brotnaði. Vátryggingarfjárhæðin miðast við verðmæti glersins ásamt ísetningarkostnaði.
Vátryggingin bætir:
- Tjón á hinu vátryggða gleri, eingöngu þegar það brotnar eftir að það er ísett, inngreypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað.
- Kostnað við ísetningu nýs glers í stað þess sem brotnaði.
Vátryggingin bætir ekki:
- Aukið verðgildi glers vegna skreytingar, slípunar og þess háttar, nema annað komi fram í vátryggingar-skírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Tjón er orsakast af eldsvoða, sprengingu eða hruni hússins.
- Tjón vegna byggingarframkvæmda eða viðgerða utanhúss á því húsi sem hið vátryggða gler er í, nema um sé að ræða venjulegt viðhald svo sem málun.
- Tjón vegna viðhalds eða aðgerða sem eru framkvæmdar á glerinu, ramma þess eða umhverfi.
- Kostnað við að fjarlægja útstillingar og annað sem kann að hindra ísetningu á nýju gleri.
- Kostnað við bráðabirgðaviðgerð vegna tjóns.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
