Hleð spilara!

Glertrygging

Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.


Tryggingin bætir tjón á gleri sem brotnar eftir að það er komið á þann stað sem því er ætlað að vera. Að auki tekur tryggingin til kostnaðar við ísetningu nýs glers í stað þess sem brotnaði. Vátryggingarfjárhæðin miðast við verðmæti glersins ásamt ísetningarkostnaði.

Vátryggingin bætir:

  • Tjón á hinu vátryggða gleri, eingöngu þegar það brotnar eftir að það er ísett, inngreypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað.
  • Kostnað við ísetningu nýs glers í stað þess sem brotnaði.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Aukið verðgildi glers vegna skreytingar, slípunar og þess háttar, nema annað komi fram í vátryggingar-skírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Tjón er orsakast af eldsvoða, sprengingu eða hruni hússins.
  • Tjón vegna byggingarframkvæmda eða viðgerða utanhúss á því húsi sem hið vátryggða gler er í, nema um sé að ræða venjulegt viðhald svo sem málun.
  • Tjón vegna viðhalds eða aðgerða sem eru framkvæmdar á glerinu, ramma þess eða umhverfi.
  • Kostnað við að fjarlægja útstillingar og annað sem kann að hindra ísetningu á nýju gleri.
  • Kostnað við bráðabirgðaviðgerð vegna tjóns.